Sjóðurinn

Lög Akks

Stjórn

Starfsreglur

 

Fréttir

Umsóknarfrestur um styrki úr Akk fyrir árið 2008 er til  25. febrúar 2008. 

Samkvæmt reglum sjóðsins er ákveðnu hlutfalli raunávöxtunar sjóðis veitt til styrkja árlega. Til úthlutunar árið 2008 verða um 4 milljónir króna

Styrkjunum verður úthlutað á aðafundi VM sem haldinn verður á Grand Hótel Reykjavík, þann  4. apríl.

 

Akkur auglýsir eftir umsóknum

Akkur, Styrktar- og menningarsjóður vélstjóra og vélfræðinga, auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Sjóðurinn veitir annars vegar styrki til rannsóknarverkefna sem tengjast vinnuumhverfi og aðbúnaði vélstjóra og vélfræðinga og þróun námsefnis og kennsluaðferða til vélstjórnarnáms og hins vegar styrki til ýmiss konar brautryðjenda- og þróunarstarfs sem hefur samfélagslegt gildi svo og til menningarstarfsemi og listsköpunar.
Einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og menntastofnanir geta sótt um styrk úr sjóðnum. Til úthlutunar árið 2008 verða um 4 milljónir króna. Umsóknir berist Akki, Styrktar- og menningarsjóði vélstjóra og vélfræðinga, eigi síðar en 25. febrúar 2008.
Nánari upplýsingar um styrkveitingar úr sjóðnum er að finna á heimasíðu sjóðsins: www.akkur.is, þar sem nálgast má umsóknareyðublöð og ýmsar upplýsingar.

Forsaga

Þegar Sparisjóður vélstjóra var stofnaður árið 1961 var hann fyrstu árin til húsa í húsnæði Vélstjórafélags Íslands að Bárugötu 11 í Reykjavík og naut starfskrafta félagsins fyrstu árin. Fyrir þetta hlutverk fyrstu starfsár sjóðsins fékk félagið til eignar 51 stofnbréf í sjóðnum sem síðar fjölgaði í 102 við fjölgun bréfanna.

Þegar stofnbréfin í sparisjóðunum urðu að markaðsvöru seldi félagið 101 bréf sem það fékk 185 milljónir fyrir. Samþykktir sparisjóðanna kveða á um að verðmæti stofnbréfanna sé upphaflegt verð þeirra að viðbættum áföllnum vöxtum frá stofndegi þ.e. þau endurspegli ekki verðmæti sjóðanna líkt og hlutabréf gera.

Það verðmæti sparisjóðanna sem er umfram uppfært verð stofnbréfa þeirra er talið án eiganda og að því beri að skila aftur til samfélagsins. Þess vegna ákvað stjórn Vélstjórafélags Íslands að láta þessa fjármuni renna í sjóð sem síðan styrkti ýmis þjóðþrifamál og verkefni sem hafa samfélagslegt gildi.

Stjórn Akks

Formaður stjórnar sjóðsins skal vera utan félagsins en aðrir í stjórn sjóðsins eru vélstjórnarmenntaðir. Í fyrstu stjórn félagsins sitja Magnús Jóhannesson, formaður, Helgi Laxdal og Guðmundur Ragnarsson meðstjórnendur. Varamenn eru Páll Magnússon,  Jón Hansson og Heimir Pálmason.

Sækja um styrk til rannsóknarverkefnis, brautryðjenda- eða þróunarstarfa.
Sækja um styrk til menningarstarfsemi eða listsköpunar.

Akkur, styrktar- og menningarsjóður vélstjóra og vélfræðinga - Borgartúni 18 - 105 Reykjavík - 575 9800 - akkur@vm.is